152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

afglæpavæðing vörslu neysluskammta.

[15:27]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Bara til að skýra það fyrir hæstv. ráðherra, vegna þess að hann virðist ekki alveg vera með það á hreinu, er mjög ólíku saman að jafna þegar kemur að nauðungarfrumvarpi hæstv. heilbrigðisráðherra, þar sem verið er að skerða mannréttindi, skerða þau, og síðan afglæpavæðingu vörslu neysluskammta, þar sem er verið að efla mannréttindi. Það er ekki alveg sami hluturinn fyrir utan það að við höfum auðvitað frá árinu 2015 verið með þetta mál á dagskrá, verið með þetta mál hérna í þinginu, verið með til umræðu að það þurfi að hætta að refsa notendum fyrir neyslu. Hæstv. ráðherra hefur verið í ríkisstjórn allan þennan tíma að undanskildum nokkrum mánuðum. Hvar eru öll þessi meðferðarúrræði sem hæstv. innviðaráðherra talar um að sé svo mikilvægt að verði til staðar? Af hverju er ekki búið að ganga í það? Ég ítreka kannski fyrir hæstv. innviðaráðherra að úrræðin sem við höfum núna er að refsa ungu fólki. Úrræðin sem við höfum núna er að koma þeim á sakaskrá. Úrræðin sem við höfum núna viðurkennir hæstv. ráðherra sjálfur að virka ekki, (Forseti hringir.) viðurkennir Framsóknarflokkurinn að virka ekki. Hvað stendur í vegi fyrir að við hættum að refsa veiku fólki?