afglæpavæðing vörslu neysluskammta.
Virðulegur forseti. Ég var ekki að bera saman innihald tveggja mála hér áðan, ég var bara að tala um að ef menn telja að mikilvægt sé að leggja raunverulegt virði í samráð og segja að það sé mikilvægt í einu máli þá hlýtur það að gilda um annað mál líka. Það var það sem ég var að benda á. Ég er sammála þeirri yfirlýsingu hv. þingmanns að okkur hafi ekkert gengið sérstaklega vel með þá stefnu sem við erum með. Þess vegna eigum við að leita leiða til að gera það betur. Kannski er svarið við þessu háa ákalli hv. þingmanns einfaldlega það að þrátt fyrir að Píratar hafi talað talsvert um þetta var ekki vandað nóg til verka. Kannski er það það sem við erum að gera núna, að vanda til verka. Ég hef heyrt þingflokk Pírata öll þessi ár kalla hér á vönduð vinnubrögð og að tryggja form og ferla þannig að kannski eigum við bara að gera það, hv. þingmaður.