samfélagsbanki.
Frú forseti. Einkavæðing fallins banka sem íslenskir skattgreiðendur endurreistu með ærnum tilkostnaði og fórnum er í fullum gangi. Hún hefur verið gagnrýnd mikið. Það sem er eftirtektarvert er að samkvæmt skoðanakönnunum vill minni hluti íslensku þjóðarinnar alls ekki selja bankana til einkaaðila. Bæði Vinstri græn og Framsóknarflokkurinn hafa á stefnuskrá sinni að stuðla að myndun samfélagsbanka og er það jákvætt. Það virðist sem meiri hluti Íslendinga hafi áttað sig á því að einkabankar eru sífellt að fara á hausinn og með ærnum tilkostnaði. Sem dæmi vil ég nefna að frá 1970–2011 urðu 147 bankakreppur í heiminum. Að bankar, og oft margir í einu, lendi í rekstrarerfiðleikum þrisvar til fjórum sinnum á ári einhvers staðar í heiminum og þurfi að leita á náðir skattgreiðenda getur ekki verið gott kerfi, enda sagði Sir Mervyn King, fyrrverandi seðlabankastjóri Bretlands, með leyfi forseta: „Of all the many ways to organize banking, the worst is the one we have today.“ Eða með öðrum orðum: Við notum í dag verstu útgáfu af bankakerfi sem til er og því munu öll önnur kerfi okkar einfaldlega vera betri. Þess vegna ætti að vera augljóst að samfélagsbanki væri stórt skref til skaðaminnkunar í núverandi kerfi. Ég vil gjarnan heyra skoðun hæstv. forsætisráðherra á því hvort hún telji æskilegt að Landsbankanum verði breytt í samfélagsbanka og hvort hún muni stuðla að því.