152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

samfélagsbanki.

[15:32]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er rétt að það er í stefnu okkar í Vinstri grænum að Landsbankinn eigi áfram að vera í eigu ríkisins. Því eru engin slík áform uppi af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er hins vegar okkar skoðun að það sé ekki endilega nauðsynlegt eða heppilegt að ríkið eigi jafn stóran hluta af fjármálakerfinu og raun ber vitni á Íslandi í dag og það er ástæðan fyrir því að við höfum ráðist í það verkefni að selja hlut í Íslandsbanka.

Hvað varðar samfélagsbankahugmyndina, og af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um Landsbankann í tengslum við þetta, og að einhverju leyti hefur banki í eigu ríkisins ákveðnum skyldum að gegna gagnvart samfélaginu: Þegar maður hugsar um þetta samfélagsbankalíkan, eins og við höfum séð það þróast í öðrum ríkjum t.d., þá er það gjarnan vegna áhuga heimamanna á hverjum stað, eins og við þekkjum hreinlega úr sparisjóðakerfinu eins og það þróaðist í upphafi, þar sem komið er á laggirnar fjármálastofnun sem þjónustar nærumhverfi sitt.

Ég myndi telja æskilegt að við mótuðum að einhverju leyti lagaumhverfi, sem að sumu leyti hefur orðið strangara vegna þess að við höfum verið að innleiða evrópskt regluverk, sem er mjög gott og mikilvægt, en gerir að einhverju leyti ekki ráð fyrir þessum litlu einingum í fjármálakerfinu. Það er kannski sú áskorun sem við stöndum frammi fyrir, þ.e. hvernig við getum tryggt að þessar smærri einingar, sem snúast um sitt nærsamfélag, geti blómstrað í kerfi sem er eigi að síður með skýrar kröfur og strangt regluverk þannig að við lendum til að mynda ekki í því, sem hv. þingmaður nefndi hér, að við séum að sjá banka fara á hausinn og verða til skaða fyrir samfélag sitt. Og ég vil bara minna á að það er auðvitað gerólíkt laga- og regluverk sem við búum við núna en við bjuggum við árið 2008 þegar hrunið varð.