152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

samfélagsbanki.

[15:34]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin, það var gott að heyra að hún er sömu skoðunar og ég í þessum málum. En í síðustu viku var hluti af Íslandsbanka seldur og mikil gagnrýni hefur komið fram á söluferlið og ég hef hitt marga á förnum vegi sem eru hreint bálreiðir og líka mjög vonsviknir. Við fáum ekki að vita fyrr en eftir á hverjir eru að kaupa bankann sem við eignuðumst nauðbeygð með töluverðum fórnum eftir stjörnuvitlausa vanstjórn þáverandi eigenda. Traust á bönkum er lítið og hætta er á því að ríkisstjórnin feti sömu leið ef ferlið verður ekki gagnsærra. Það voru mikil mistök að mínu mati að selja jafn stóran hlut og raun ber vitni í lokuðu tilboðsferli. Þegar leynd hvílir yfir svo þjóðhagslega mikilvægum viðskiptum þá er ekki annað hægt en að hafa áhyggjur. Mörg okkar höfðum bundið vonir við að hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) yrði boðberi nýrra tíma í stjórnmálum en þessi einkavæðing gefur til kynna að Íslandi sé enn stjórnað af fjármagnseigendum.