152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

samfélagsbanki.

[15:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Ég vil minna á að hluti Íslandsbanka var seldur hér í — ja, hvenær var það nú? Var það ekki í fyrra? 35% hlutur u.þ.b. og í því tóku u.þ.b. 20.000 aðilar þátt. Við höfum því náð þeim markmiðum að þetta fyrirtæki er vafalaust í dreifðara eignarhaldi en nokkurt annað fyrirtæki á Íslandi. Þessi hlutur núna var seldur í svokölluðu tilboðsferli og ég hef væntingar um að Bankasýslan muni, við uppgjör viðskiptanna, birta upplýsingar um það hverjir keyptu. Nú liggur þegar fyrir hverjir keyptu stærstu hlutina af því að Íslandsbanki sjálfur hefur birt upplýsingar um það. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er núna orðinn næststærsti hluthafi í bankanum á eftir ríkinu.

Ég tek undir það með hv. þingmanni að um þessi mál á að ríkja gagnsæi. Það er hlutverk stofnunarinnar, sem vissulega er í ákveðinni armslengd frá hinu pólitíska valdi, til að tryggja að stjórnvöld hafi ekki afskipti af þessu ferli. (Forseti hringir.) Að sjálfsögðu á þessi stofnun að lúta hinum almennu reglum um gagnsæi því að það eru almannahagsmunir (Forseti hringir.) að þessi mál séu uppi á borðum.