152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

veiðigjöld.

[15:38]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Það er fagnaðarefni að Framsóknarflokkurinn skuli sýna það frumkvæði í ríkisstjórninni að setja veiðigjöldin á dagskrá. Formaður og varaformaður flokksins hafa talað afar skýrt. Það á að hækka veiðigjöld og, virðulegur forseti, röksemdafærslan er líka skýr. Það er talað um ofurhagnað og sífellt aukin ítök sjávarútvegsfyrirtækja í öðrum greinum. Framsóknarflokkurinn er sem sagt til í þetta samtal. Það er stjórnarandstaðan líka og reyndar er staðan sú að það er ágætur þingmeirihluti fyrir því að hækka veiðigjöld eins og áður hefur verið nefnt í þessum ræðustól. Andstaðan gegn þessu er hins vegar á kunnuglegum stað. Hæstv. fjármálaráðherra var spurður um þetta í þinginu í síðustu viku af formanni Samfylkingar og það var vægast sagt áhugavert að hlusta á svörin. Hann þuldi upp almennar skattgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja eins og þau ættu skilið eitthvert sérstakt klapp á bakið fyrir að borga skatt eins og önnur fyrirtæki og fólkið í landinu. Fyrir nú utan hugsunarvilluna að kannast ekki við að veiðigjöld séu ekki hefðbundinn skattur heldur gjald fyrir að fá að veiða fiskinn okkar allra. Flækjustigið vegna mismunandi stærðar veltu og fjárhags fyrirtækja í sjávarútvegskerfinu virtist honum einnig yfirþyrmandi og jafnvel óyfirstíganlegt vandamál, jafnvel þótt flokkur hans og ráðuneyti sé þekkt fyrir ákaflega skapandi vinnu og mikið hugvit þegar kemur að því að búa til girðingar og skerðingar í því kerfi sem eldri borgarar og öryrkjar reiða sig á, að ekki sé talað um hið margþrepa almenna skattkerfi. Ekki var síður áhugavert að heyra hann engjast yfir hugmyndum Framsóknarflokksins um orðið ofurhagnað. Það hugtak virtist honum framandi og illskilgreinanlegt og ómögulegt annað en að draga þá ályktun að hann hafni alfarið þessum góðu hugmyndum samstarfsflokksins. Ég spyr því: Er formaður Framsóknarflokksins sammála því að það sé svona flókið að hrinda hugmyndum um að almenningur í landinu fái hærri hlutdeild í ofurhagnaðinum sem Framsókn talar um? Er eitthvað því til fyrirstöðu að Framsóknarflokkurinn hrindi þessu þjóðþrifamáli í framkvæmd með stjórnarandstöðunni úr því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að halda áfram nauðvörn sinni gegn þessu ágæta máli?