152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

veiðigjöld.

[15:40]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að vitna hér svona ágætlega í ræðu mína á flokksþingi. Hann hefði reyndar, úr því að hann var byrjaður að fjalla um þennan kafla um sjávarútvegsmál og fiskeldi, kannski átt að fara aðeins ofan í það sem ég sagði líka og hef síðan útskýrt í blaðaviðtölum. En ég fagna þessum almenna áhuga Viðreisnar á okkar málflutningi. Það sem ég hef sagt, og skal útskýra aftur fyrir hv. þingmanni, er að ég tel að á næstu tíu árum muni auðlindin skila svipuðu magni af sjávarfangi en arðsemin af þeirri starfsemi muni vaxa umtalsvert, samanber skýrslu Sveins Agnarssonar o.fl. sem birtist síðastliðið vor. Ég tel eðlilegt að hluti af þeirri auknu arðsemi fari til eiganda auðlindarinnar, þjóðarinnar. Það var um það sem ég var að fjalla.

Ég hef hins vegar útskýrt þetta með veiðigjöldin, af því að hv. þingmaður segir, og ég hef heyrt aðra segja það, að ég hafi verið að tala sérstaklega um að þau ættu að hækka, að það var ekki það sem ég sagði. Ég tel t.d. að prósentuhlutinn þar sé íþyngjandi hár fyrir venjuleg fyrirtæki. Ég hef í mörg ár talað fyrir því að veiðigjöldin þurfi að vera tvískipt, þ.e. líka hvað varðar almennan hagnað, og þá ekki bara á sjávarútvegsfyrirtæki heldur líka önnur þau fyrirtæki sem hagnast verulega þegar vel gengur. Það er það sem ég hef verið að tala fyrir. Mér heyrðist fjármálaráðherra, þó að ég hlustaði ekki á allt þetta samtal í þinginu í síðustu viku, vera að ýja að því að það væri líka til í dæminu að fara aðrar leiðir. Ég hef verið að tala fyrir því, ég hef ekki verið að tala um að hækka veiðigjöldin á alla útgerðarmenn vegna þess að það er ekki hægt. Ég vil halda í fjölbreytileikann. En það eru sannarlega fyrirtæki í þessum geira sem starfa með frjálsari hætti en margt annað sem við leyfum í þessu kerfi frá þinginu, löggjafanum, sem gerir að verkum að þau hafa hagnast umtalsvert þegar vel gengur og það er eðlilegt að stærri hluti af því renni til þjóðarinnar.