152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

veiðigjöld.

[15:44]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hækkar hér röddina. Það getur verið ágætt á köflum. Ég hef prófað það stundum. En flokkur hans hefur talað fyrir því að fara í uppboð og að það sé leiðin til þess að fá stærri skerf til þjóðarinnar. Um það er engin sátt, hv. þingmaður. Sú aðferð hefur verið prófuð á þó nokkrum stöðum og allir hafa horfið frá henni, allir. Þannig að þetta er ekki alveg auðvelt. Það sem ég hef verið að leggja til er að það sé einfaldlega viðbótartekjuskattsþrep til þess að fá meiri skerf af þeim hagnaði sem verður til við að nýta auðlindina til eigandans, sem erum við þjóðin. Það má líka hugsa sér að sáttin felist í því að í stjórnarskrána verði sett skýrt auðlindaákvæði, sem ég hef líka talað fyrir og Framsóknarflokkurinn í mörg ár. Það er því ábyggilega margt sem við eigum sameiginlegt um markmið en ég held að leiðir þessara tveggja flokka að því séu talsvert ólíkar og þess vegna ekki (Forseti hringir.) hægt að koma hér upp og hækka röddina og segja: Komdu bara með í þessa vegferð. Af því að það er ekki sama vegferðin, ekki endilega. (Forseti hringir.) En ég er til í samtalið. Það sagði ég skýrt á flokksþinginu.