152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:55]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil fá að taka undir með hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni og ég ætla að leyfa mér að vitna í orð hæstv. forsætisráðherra frá því núna klukkan rúmlega þrjú, með leyfi forseta:

„Ég tel líka mikilvægt að við mætum þessum afleiðingum með aðgerðum sem beinast að tilteknum hópum, ekki endilega flötum aðgerðum sem dreifast jafnt á alla, heldur einmitt svona markmiðssettum aðgerðum.“

Hér er átt við aðgerðir fyrir heimilin vegna 7% verðbólgu í landinu. Það vill svo til að við í Samfylkingunni höfum talað fyrir aðgerðum í að verða tvo mánuði og munurinn á okkur og hæstv. forsætisráðherra er að hún stjórnar landinu. Þetta getur hún raunverulega gert, ekki bara sagt. Hvar er þingmálið sem hér er alltaf verið að vitna til í pontu? Af hverju kemur ekkert inn í þingið? Þessir frasar hafa nákvæmlega enga merkingu ef þeim fylgja engar aðgerðir. Af hverju er ekki bara hægt að taka undir þingmál sem eru tilbúin og liggja fyrir þinginu?