152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:05]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég hef margoft komið í þennan stól og kallað eftir aðgerðum til að verja heimilin en ekkert bólar enn á þeim. Hér er ég þó komin því að á föstudaginn barst þingmönnum enn og aftur neyðarkall frá samstöðuhópi einyrkja og lítilla fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þetta er hópur sem hefur fallið á milli skips og bryggju í aðgerðum ríkisstjórnarinnar og er nú að þrotum kominn. Þau áttu að geta sótt um viðspyrnustyrki um síðustu mánaðamót en enn bólar ekkert á þeim. Ég treysti því að Skatturinn og allir sem þetta snertir séu að gera sitt besta. Ég vil beina því til forseta að hlutast til um að þeim fyrirtækjum úr þessum hópi sem hafa gefist upp á síðustu vikum og mánuðum verði hjálpað til að koma undir sig fótum á ný. Fyrirtæki sem stóðu illa fyrir voru fljót að falla þegar Covid hófst en þau fyrirtæki sem hafa staðist álagið allan þennan tíma, í ár eða lengur, hljóta að vera vel rekin fyrirtæki þótt þau hafi ekki haft bolmagn til að þola algjört hrun í ferðaþjónustunni til langs tíma.

Ég vil því biðja forseta að athuga hvað tefur viðspyrnustyrkina sem áttu að koma um síðustu mánaðamót, (Forseti hringir.) auk þess að hlutast til um að málefni þeirra litlu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem féllu á síðustu metrunum (Forseti hringir.) verði skoðuð með tilliti til þess hvort hægt sé að reisa þau við aftur. (Forseti hringir.) Það á enginn að þurfa að missa heimili vegna „force majeure“ ástands eins og Covid vissulega er.