152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:06]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það var átakasamt í síðustu viku hér á þingi, sér í lagi undir lok þinghaldsins, en mér fannst góður bragur á því að fólk fór að setjast niður og tala saman, nokkuð sem hefur kannski ekki tíðkast of mikið hér á hinu háa Alþingi. Mig langar bara að hvetja þingheim allan til að ræða vel saman, hlusta á faglegar athugasemdir og málefnalegar við þau mál sem verið er að vinna og taka mál sem hafa komið inn í nefndir, sem flutt eru af mjög breiðum hópi þingmanna, til málefnalegrar umræðu. Við getum alveg unnið betur saman. Gerum það.