um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra sagði hérna áðan, með leyfi forseta:
„Ég tel líka mikilvægt að við mætum þessum afleiðingum með aðgerðum sem beinast að tilteknum hópum, ekki endilega flötum aðgerðum sem dreifast jafnt á alla heldur einmitt svona markmiðssettum aðgerðum.“
En hvar eru þessar aðgerðir? Það bólar ekkert á þeim. Það er ekkert í þingmálaskránni. Það er ekkert þingmál komið hérna inn. Ekki neitt. Þetta er bara jafn mikill brandari og þegar hæstv. innviðaráðherra kallar eftir því að almenningur fái aukna hlutdeild af arðinum í sjávarútvegi, kemur svo hingað upp í pontu og afhjúpar að hann meinar ekkert með því sem hann sagði á flokksstjórnarfundi Framsóknarflokksins. Þetta er allt í kjaftinum á þeim. Þeir segja eitt í fjölmiðlum en segja svo eitthvað allt annað hérna í þingsal. Framsóknarflokkurinn er einn flokkur í fréttatímum en einhver allt annar flokkur við ríkisstjórnarborðið og hér á Alþingi. Það sama gildir um hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) og þann málstað sem hún stundum þykist tala fyrir hér í þinginu. Hvar eru þingmálin? Það er ekki neitt. (Forseti hringir.) Það er ekkert á þingmálaskránni. Það er ekkert komið hérna inn. Það er ekkert að marka.