fæðuöryggi þjóðarinnar í ljósi stríðsins í Úkraínu.
Frú forseti. Ísland á fæðuöryggi sitt undir því að hér séu frjáls viðskipti með vörur innan lands sem utan, án þvingana og einokunartilburða. Það er stríð í Evrópu og við þær aðstæður er alveg eðlilegt að við veltum fyrir okkur fæðuöryggi því að við erum langt í frá sjálfbær þegar kemur að matvælaframleiðslu. Því verðum við að treysta á að geta flutt inn ýmiss konar aðföng, m.a. þær vörur sem helst eru fluttar inn frá Úkraínu og Rússlandi en einnig vörur sem Evrópuríkin þurfa í sína framleiðslu.
Við erum líka háð því að verð á aðföngum rjúki ekki upp úr öllu valdi. Við erum háð því að hér ríki ekki slíkt ástand að almenningur hafi ekki efni á nauðsynjum því að það er einfaldlega svo að hvort tveggja hækkun á innlendri vöru sem og hækkun á vöruverði erlendis frá, hvort sem er til neyslu eða framleiðslu, getur ógnað fæðuöryggi landsmanna. Það er raunverulega sú staða uppi en ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur því miður lítinn áhuga á að koma heimilunum í landinu til aðstoðar vegna síhækkandi verðlags og verðbólguskots.
Virðulegur forseti. Á verðbólgutímum er tímabært að lækka tolla svo að almenningur hafi ráð á að fæða sig og sínar fjölskyldur. Sú haftastefna sem rekin er hér er ekki leiðin að fæðuöryggi heldur á þvert á móti að gera allt sem hægt er til að tryggja almenningi öruggt aðgengi að fæðu. Þá þarf að lækka raforkukostnað til grænmetisræktunar og annarrar landbúnaðarframleiðslu. Það þarf að lagfæra löngu úr sér gengið landbúnaðarkerfi í þágu bænda og í þágu neytenda og einfaldlega gera allt til að auka fæðuöryggi landsmanna. Svona einfalt er það.