152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

fæðuöryggi þjóðarinnar í ljósi stríðsins í Úkraínu.

[16:52]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf):

Frú forseti. Heimsfaraldur Covid-19 og nú stríðið í Úkraínu hefur sýnt fram á hve mikilvæg innlend matvælaframleiðsla er fyrir öryggi þjóða. Innlend matvælaframleiðsla er sérstaklega mikilvæg þegar þjóð er jafn einangruð og viðkvæm fyrir röskun á innflutningi á matvælum og Ísland. Þess vegna er fullt tilefni til að ráðast í stórsókn í framleiðslu garðyrkjuafurða og styrkja alla aðra matvælaframleiðslu. Aðgengi að ódýrri orku hefur átt stóran þátt í uppbyggingu garðyrkju á Íslandi. Raforkuverð hefur því bein áhrif á það hversu mikið garðyrkjubændur geta framleitt og á hvaða verði þeir selja afurðir sínar til neytenda. Raforka er nú markaðsvara og því þarf að greiða fyrir hana markaðsverð sem sveiflast eftir framboði og eftirspurn. Til að stuðla að aukinni framleiðslu garðyrkjuafurða hefur íslenska ríkið í gegnum tíðina niðurgreitt að ákveðnu marki kostnað garðyrkjubænda við flutning og dreifingu á raforku. Við í Flokki fólksins viljum auka stuðning til garðyrkjubænda með því að lækka enn frekar raforkuverðið til þeirra. Við viljum að á næstu fjórum árum verði niðurgreiddur allur kostnaður við flutning og dreifingu raforku til framleiðslu á garðyrkjuafurðum.

Ég vil minna á að Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp um niðurgreiðslu á raforku til garðyrkjubænda. Frumvarpið er til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd og að gefnu tilefni vil ég hvetja nefndarmenn til að leggja áherslu á afgreiðslu málsins enda varðar það mikilvægi lands og þjóðar.