152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

málarekstur ráðherra fyrir dómstólum.

423. mál
[17:17]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði þessu tengt, tengt dómsmálum íslenska ríkisins, að tala um mál sem var flutt í Hæstarétti Íslands í liðinni viku, mál sem ekki hefur flogið hátt þrátt fyrir að vera stórpólitískt í eðli sínu sem er dómsmál íslenska ríkisins eða Tryggingastofnunar gegn Öryrkjabandalaginu. Ríkið hefur í tvígang tapað þessu máli en reyndi nú í þriðja sinn. Málið snýst um greiðslur til tekjulægsta hóps örorkulífeyrisþega, verst setta hópsins sem þiggur sérstaka framfærsluuppbót, fólk sem hefur tekjur undir framfærsluviðmiði laganna, málið snýst um rétt ríkisins til að skerða þessa sérstöku uppbót. Það var þáverandi félags- og barnamálaráðherra sem kynnti þessa ákvörðun í ríkisstjórninni, ætlaði að láta á það reyna. Ég lagði nýlega fram fyrirspurn til nýs félagsmálaráðherra því ég vildi láta á það reyna hvort hann væri sama sinnis eða gerði athugasemdir við þennan málarekstur, þ.e. að láta reyna á málið í þriðja sinni í Hæstarétti Íslands þrátt fyrir hafa tapað málinu í tvígang. (Forseti hringir.) Svörin bera með sér að hann gerði það ekki. Mér finnst þetta mál eiga erindi í þessari umræðu.