málarekstur ráðherra fyrir dómstólum.
Frú forseti. Það er oft sem við heyrum ráðherra segja að þeir tjái sig ekki um málefni einstaklinga þegar við erum að spyrja út í t.d. flóttafólk sem á að brottvísa eða annað sem bjátar á í kerfinu okkar. Það er skiljanleg afstaða vegna þess að það er mikill þungi í orðum ráðherra. Það er mikill þungi í aðgerðum Stjórnarráðsins þegar valdahlutföllin eru eins ójöfn og á milli Stjórnarráðs Íslands og einstaklinga. Þess vegna hlýtur ráðherra að þurfa að yfirvega það mjög vandlega hvort hann beiti í ofanálag réttarkerfinu gegn einstaklingum. Það er einmitt áhugavert að skoða lög um ríkislögmann vegna þess að ríkislögmaður heyrir ekki undir ráðherra heldur undir Stjórnarráðið og þá mætti í rauninni segja að ríkislögmaður væri vegna þessarar sérstöku stöðu samkvæmt lögum de facto fjölskipað stjórnvald. Þar með þyrfti ríkisstjórn Íslands að taka sameiginlega einhverja afstöðu (Forseti hringir.) til þeirra mála sem eru rekin. Í því máli sem var nefnt í máli upphafsmanns umræðunnar (Forseti hringir.) þá hefði ég nú haldið að forsætisráðherra, sem einnig gegnir hlutverki jafnréttisráðherra, (Forseti hringir.) myndi hugsa sig vel um út af þeim kælingaráhrifum sem málarekstur af þessu tagi hefur á fólk sem leitar réttar síns.
(Forseti (LínS): Forseti vill minna hv. þingmenn á að tækifæri til að blanda sér í þessa umræðu er ein mínúta.)