málarekstur ráðherra fyrir dómstólum.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra taldi hér upp mál sem höfðu verið höfðuð af hálfu ráðherra. Það eru ekki einu málin sem rekin eru af því að stundum er verið að taka til varna og svo er áfrýjað eða kært og áfrýjað aftur. Þannig var það t.d. með Landsréttarmálið þegar ráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hélt áfram endalaust og umboðsmaður Alþingis taldi ástæðu til þess að senda álit eða einhvers konar tiltal til ríkislögmanns um það ójafnræði sem er milli aðila þegar ríkið beitir öllum sínum þunga í málarekstri gagnvart borgara. Það verður að hafa það í huga, virðulegi forseti, þegar verið er að reka mál af þessu tagi fyrir dómstólum. (Forseti hringir.) Ríkið verður einhvers staðar að átta sig á því (Forseti hringir.) að það hefur mögulega rangt fyrir sér og viðurkenna það en ekki djöflast áfram gegn borgurunum fyrir dómstólum.