málarekstur ráðherra fyrir dómstólum.
Forseti. Mér finnst mikilvægt að minnast aðeins á ráðherraábyrgð í þessu samhengi af því að það skiptir máli hvernig brotið er hvað varðar ábyrgð ráðherra á því broti. Þegar t.d. Jóhanna Sigurðardóttir var dæmd brotleg vegna jafnréttislaga þá fylgdi hún ráðleggingum hæfnisnefnda í einu og öllu. Þar var ekki um sérstaka ákvörðun ráðherra að ræða um að toga einn fram fyrir eða annan eða eitthvað því um líkt. En stjórnsýslan brást þar og ekkert óeðlilegt að ráðherra beri ábyrgð á því en ekki á sambærilegan hátt t.d. og þegar hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson braut jafnréttislög. Þar var það sérstaklega ákvörðun ráðherra að taka einn umfram annan. Þar kom ráðherra sérstaklega að ákvörðuninni um það hvor umsækjandinn væri hæfastur. Þar ber ráðherra persónulega ábyrgð. (Forseti hringir.) Þar er munur á sem við þurfum að hafa í huga þegar við metum svona mál.