málarekstur ráðherra fyrir dómstólum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og umræðuna hér. Ég vil einnig draga fram hversu mikil tímamót og hversu mikil umskipti þetta voru í rauninni, sú ákvörðun að fara í þetta mál sem er títtnefnt hér, því að miðað við tölur frá hæstv. ráðherra hafði ríkið höfðað sjö mál og þar af voru fjögur mál á hendur einstaklingum og fjögur mál fóru fyrir Félagsdóm. Þetta sýnir það náttúrlega að málsóknir fyrir dómstólum eru fátíðar, eins og hæstv. ráðherra sagði. Og þess þá heldur er mikilvægt að það liggi alveg skýrt fyrir af ríkisins hálfu af hverju er verið að fara fram og beita þunga. Það er rétt sem hefur verið sagt hér um þetta valdaójafnvægi sem er á milli ríkisins annars vegar og borgaranna hins vegar þegar ríkið fer fram af öllum sínum þunga og öllum sínum krafti, líka í skjóli ríkissjóðs, gagnvart borgurum. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að beita sér fyrir skýrri framkvæmd og skýrum reglum hvað þetta varðar.
Ég vil í því samhengi spyrja hæstv. ráðherra: Var þetta mál rætt í ríkisstjórn? Af því að þetta er það sérstakt, við sjáum það á öllum gögnum. Í öðru lagi: Hefur komið til umræðu að siðareglum verði breytt í samhengi við svona mál? Í þriðja lagi: Hvaða áhrif telur hæstv. ráðherra að þetta hafi á til að mynda jafnréttismálin, jafnréttisþáttinn, að fólk leiti réttar síns, að konur leiti réttar síns? Hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af því?
Ég vil segja að þegar ríkisvaldinu er beitt með þessum hætti þá verða stjórnsýslureglur að vera alveg skýrar, að þær séu virtar, að það sé farið í meðalhófið og farið eftir þeim leikreglum, siðuðu leikreglunum og líka lagalegum reglunum sem við höfum sett okkur. Svona nokkuð verðum við að mínu mati að reyna að forðast að gerist aftur. Um leið þakka ég (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég veit að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) var ekkert mjög umhugað um þetta mál og hefði helst af öllu ekki viljað sjá það, (Forseti hringir.) enda ráðherra jafnréttismála í þessu. En þetta er ákvörðun sem var tekin af hálfu ráðherra í þessari ríkisstjórn og ég beini (Forseti hringir.) því til ráðherra að skerpa og skýra á þessum ramma, á þessum reglum og viðmiðunum (Forseti hringir.) sem ráðherra hefur sett til þess að fara í mál gegn borgaranum.