skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Mig langar að gera athugasemd vegna þess að við sjáum hér birtingu ójöfnuðar, byggðaójöfnuðar. Á fundi sem ég hélt m.a. með íbúum Þórshafnar kom fram að Frumherji hefði verið með reglulega viðveru á Þórshöfn í samstarfi við bifreiðaverkstæði á staðnum en þessu hefði verið hætt vegna þess að það svaraði ekki kostnaði því að þetta á allt að vera á markaðslegum forsendum. Einstaklingar frá Þórshöfn þurfa því að keyra 70–150 km, oftar hið síðarnefnda, til að sækja þessa skoðun. Það er einkaaðili sem sér um lögskylda skoðun sem tekur ákvörðun um að sinna ekki ákveðnu svæði og ef fólk kemst ekki 70–150 km þá rukkar ríkið það um háar sektir og hagnast á aðstöðuleysi þessa fólks. Allt af því að þetta á að vera gert á markaðslegum forsendum. Hér er oft um að ræða bíla sem aldrei myndu annars nýta þjóðvegina af því að fólk á kannski ekki erindi svona langt út fyrir sitt bæjarstæði. Hér þarf augljóslega að gera einhverja bragarbót á.