152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.

228. mál
[17:43]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu um þjónustuskyldu skoðunarstofa því eins og kom fram í máli hv. þingkonu Kristrúnar Frostadóttur, þá snýst þetta um byggðajafnrétti. Þetta snýst um að það þarf að skoða ökutæki til að tryggja að þau séu örugg en eins og með aðra grunnþjónustu í dreifðari byggðum þá er hún ekki aðgengileg alls staðar. Markaðslegar forsendur, segir ráðherrann núna, alveg eins og fyrir tveimur árum þegar hann var spurður út í þetta. Sú fyrirspurn var nefnilega eiginlega alveg eins og svarið var nánast alveg það sama. Þá voru líka fjögur fyrirtæki sem sinntu þjónustunni með tvær færanlegar skoðunarstofur, en þá sagðist ráðherrann ætla að skoða hvort hægt væri að gera eitthvað til að tryggja lágmarksþjónustu. Það var hans lokasvar, skoða hvort hægt væri að gera eitthvað til að tryggja lágmarksþjónustu. Og nú erum við að tala um skoðunarstofur. Þetta var greinilega ekki skoðað í ráðuneytinu. Hann mætir með nákvæmlega sömu svör tveimur árum seinna (Forseti hringir.) upp í opið geðið á fólkinu sem býr einmitt við þær aðstæður að geta ekki sótt sér þessa þjónustu sem þykir sjálfsögð á þéttbýlli svæðum landsins.