skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir það að við skulum hér vera að ræða skoðun ökutækja og hagsmuni bifreiðaeigenda sem fjærst búa skoðunarstofum. Ég vil líka fagna því að það skuli standa yfir endurskoðun á skoðunarhandbók hjá Samgöngustofu og leggja áherslu á að í þeirri endurskoðun verði farið yfir allar mögulegar leiðir til að mæta þeim bifreiðaeigendum og eigendum ökutækja sem erfiðast eiga með að nálgast skoðun. Hæstv. ráðherra fór hér yfir mögulegan sveigjanleika sem hefur verið komið á og ég vil bara hvetja til þess að það verði haldið áfram að skoða ólíkar leiðir til að koma á enn frekari sveigjanleika.