skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn sem hér er rædd og ég verð að viðurkenna að mér brá dálítið þegar hæstv. innviðaráðherra lýsti því hér yfir áðan, ef ég skildi ráðherrann rétt, að það mætti eiga von á því að hert yrði enn á þeim kröfum sem bifreiðaeigendur í hinum dreifðu byggðum þurfa að búa við í tengslum við uppfærða skoðunarhandbók Samgöngustofu. Ég vona bara að þar verði leitað leiða til að ganga skemmra en lengra hvað varðar þau atriði sem mest hefur verið rætt um að séu að valda þessu akstursbanni. Þessu til viðbótar þá held ég að það sé nauðsynlegt að halda til haga ýmsum þeim viðbótarkostnaði sem íbúar hinna dreifðu byggða búa við í tengslum við samgöngur, bæði vegna mikillar skattlagningar á eldsneyti, kostnaðar við viðhald bifreiða vegna lélegra vega og þar fram eftir götunum. Sá hluti er snýr að kostnaði við akstur í dreifbýli er miklu umfangsmeiri heldur en þetta tiltekna atriði og ég hvet okkur hér til að eiga umræðu um það hið fyrsta.