skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mér finnst þetta áhugaverð fyrirspurn, ég hef reyndar hvorki átt nokkurn tímann bíl né hef búið á landsbyggðinni í minni fullorðinstíð þó að ég hafi búið þar sem krakki en þetta kristallar svo vel það að þegar við setjum skyldur á fólk, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson nefndi hér áðan, þá gerum við það ekki upp á grín. Við setjum þær á fólk til að tryggja öryggi í umferðinni, til að tryggja umhverfissjónarmið og annað, en það verður að gera það á raunsæjan hátt og það verður að gera það með tilliti til hagsmuna allra, sérstaklega fólks sem er kannski ekki í bestri stöðu til að eltast við einkarekna þjónustu, og með það fyrir augum að það sé raunhæfur kostur og það sé auðvelt vegna þess að þetta er svo mikilvægt. Það mega ekki vera hindranir (Forseti hringir.) fyrir því að tryggja öryggi í umferðinni (Forseti hringir.) og umhverfissjónarmið í tengslum við mengandi hluti eins og bifreiðar.