skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað. Það eru stór sem smá mál sem skipta okkur máli hvenær sem er í lífinu. Einhver gæti sagt: Ja, það er nú ekki stórmál að láta skoða bílinn og það þarf bara að redda þeirri þjónustu. En þetta er það sem landsbyggðirnar standa frammi fyrir ítrekað í þessu máli og síðan í öðrum málum eru einhver önnur viðfangsefni. Það er sífellt þetta ákall um að bæta og auka þjónustu. Ég vil einfaldlega hvetja ráðherra, af því að það er mikill einhugur að mínu mati hér í þinginu til að gera enn betur, til að reyna að nýta þann samstarfsvilja og stuðning sem hæstv. ráðherra getur fengið hér þvert á flokka til að bæta þjónustu við landsbyggðirnar, m.a. í þessu máli, og nýta sér þann samstarfsvilja og samhug. Um leið vil ég hvetja ráðherra til að tala skýrt í sínu seinna svari (Forseti hringir.) í þá veru að við þurfum ekki að horfa upp á það að Raufarhöfn, Þórshöfn, Langanesbyggð, þurfi að bíða í önnur tvö ár eftir enn skýrara svari. (Forseti hringir.) Ég vil hvetja ráðherra til þess bæði að tala skýrt og nýta þennan samstarfsvilja í þinginu í þessu máli.