skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og þeim sem hér hafa talað. Ég átta mig á að það eru þjónustustöðvar mjög víða og netið er sæmilega þétt. Við erum samt með svona dæmi mjög víða, ekki bara á norðausturhorninu heldur líka á Vestfjörðum og annars staðar. Ég held að þetta sé eitthvað sem við þurfum að taka utan um. Ég tek alveg undir það að auðvitað þarf að huga að þessu öllu, örygginu og umhverfinu og öllu því. En þetta er í fyrsta lagi íþyngjandi, þetta akstursbann. Viðkomandi þarf að koma bílnum á verkstæði og ef hann er t.d. innlyksa á Húsavík þá þarf hann að koma sér heim aftur ef ekki er hægt að ná í varahluti o.s.frv. Þannig að þetta er flókið viðfangsefni og þetta er byggðajafnréttismál. Hæstv. ráðherra sagði hér að það væru tvær skoðunarstöðvar sem væru með hreyfanlegar skoðunarstöðvar eða -bíla. Hann taldi líka að aukinn kostnaður færi á neytendur ef skyldur væru lagðar á fyrirtækin með að sinna þessu. En ég lít svo á að þessi aukni kostnaður sé nú þegar til staðar og ívið meiri kannski heldur en ella, því að það að fara 160 km til að koma bíl í skoðun með tilheyrandi vinnutapi o.s.frv., er auðvitað mikill viðbótarkostnaður á kannski örfáa einstaklinga í sjálfu sér í stóra samhenginu. Ég hvet ráðherra aftur til að huga að þessu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að taka utan um og getum ekki látið líða önnur tvö ár til að gera það. Það er ekki bara að þetta bitni á fólki sem býr í hinum dreifðu byggðum heldur kannski líka á því fólki sem er efnaminna og hefur hreinlega ekki tök á því að sleppa vinnu til að fara með bílana sína um langan veg í skoðun. Þannig að ég held að við eigum sannarlega að horfa til þess að leggja ríkari skyldur á aðila eða semja um það við þá aðila sem þegar eru með þessa bíla að þeir sinni þessu sómasamlega.