skoðun ökutækja og hagsmunir bifreiðaeigenda á landsbyggðinni.
Herra forseti. Ég þakka fyrir fína umræðu um þetta mál. Einn hv. þingmaður hefur greinilega misskilið mál mitt og talaði um að reglur yrðu hertar enn frekar frá því sem nú er, var þá að vísa í þá umfjöllun sem varð hér um skoðunarhandbókina. Það er einmitt það sem varð til þess að ég óskaði eftir því sérstaklega að Samgöngustofa færi yfir það, hún er að endurskoða þá handbók, en reglurnar munu herðast vegna þess að við erum að vinna eftir svokölluðum samevrópskum reglum. Það er rétt sem hér hefur verið sagt að þær reglur mega ekki vera óraunsæjar. Þær eru það oft. Þess vegna finnst mér gaman, og ég veit ekki hvort ég þori að nefna það hér, að þeir sem aðhyllast Evrópusambandið koma hérna upp (Gripið fram í.) og vilja fá sérreglur fyrir Ísland og ég er sammála ykkur. Ég er sammála ykkur og ég er til í að taka utan um þetta og reyna að gera þetta og auðvitað er það þannig að við sem búum í dreifbýli á þessu landi, og ég segi við vegna þess að ég er einn þeirra, þekkjum alveg þann ójöfnuð sem felst í að búa úti á landi miðað við þéttbýli. Ég er hins vegar ekki viss um að það séu mjög margir aðrir sem búa í dreifbýli á Íslandi í þessum sal en ég hef fullan skilning á því, þið megið ekki misskilja mig þegar ég kem hingað upp og segi: Svona er staðan.
Nú ætla ég að telja upp hvar þessar skoðunarstöðvar eru. Þær eru í Grindavík, Reykjanesbæ, Akranesi, Borgarnesi, Grundarfirði, Stykkishólmi, Hvammstanga, Búðardal, Ísafirði, Patreksfirði, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Ólafsfirði, Húsavík, Vopnafirði, Fellabæ, Reyðarfirði, Neskaupstað, Höfn, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum. Auðvitað þarf maður einhvern tímann að fara í kaupstað og maður þarf ekki að fara sérstaklega til að fara með bílinn í skoðun ef maður er búinn að reyna að búa til eins mikið svigrúm og hægt er, eins og ég lýsti í inngangi mínum, (Forseti hringir.) í báðar áttir til þess að nýta einhvern tíma á níu mánaða tímabili til að koma bílnum í skoðun. En þetta er ójöfnuður, það er rétt hjá ykkur og reglurnar verða að vera raunsæjar. Við erum að reyna að gera þær þannig.
(Forseti (BLG): Forseti minnir ráðherra á að ávarpa forseta. )