152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

Grímseyjarferja.

431. mál
[18:18]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir það góða mál sem hér var lagt fram og hæstv. ráðherra fyrir sitt svar. Nú er ég auðvitað að vísa til óskar Berglindar Óskar um Grímseyjarferju. Grímsey er í hópi þeirra mögnuðu náttúruperla sem okkar fagra land skartar og við kjósum að sýna og vonandi í vaxandi mæli eftir tveggja ára hlé. Ég minni á 70 milljarða hreinar tekjur af ferðaþjónustu árið 2018 og margir spá því að sú tala geti auðveldlega tvöfaldast. Áfangastaðurinn Grímsey, við norðurheimskautsbauginn, er eitthvað sem hið nýja glæsilega flugfélag Norðlendinga, Niceair, gæti sannarlega nýtt sér til auglýsingar og framdráttar. Ég hvet ráðherra eindregið til að stuðla að því að þetta góða mál verði að veruleika og því fyrr því betra, því að þetta er einn allra magnaðist staður sem við getum boðið upp á. Það á ekki að bjóða mönnum upp á ógleði við það eitt að vilja sækja gleði til Grímseyjar.