uppfletting í fasteignaskrá.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina. Varðandi það hvort til standi að viðhalda þeirri gjaldskrá sem var í gildi hjá Þjóðskrá eftir að fasteignaskráin verður flutt samkvæmt frumvarpi yfir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þá vil ég nefna að verið er að reyna að vinna frumvarpið hratt. Mér sýnist við ekki ná því inn fyrir 1. apríl og mun örugglega koma hér og biðja þingið um afbrigði til að hægt sé að koma því inn og afgreiða í vor. En það er sem sagt einungis verið að flytja tekjur og gjöld í samræmi við gildandi gjaldskrá þannig að flutningurinn sem slíkur hefur ekki áhrif á gjaldskrána. Svona til að svara því hvort gjaldskráin sé hófleg að mati ráðherra þá er það matsatriði, eins og hv. þingmaður minntist á. Það er auðvitað matsatriði hvenær gjald telst vera hóflegt og hvenær ekki. Þannig er hægt að horfa á staka tölu og finnast hún vera ýmist há eða lág án þess að gera sér grein fyrir hvaða vinna liggur á bak við töluna. Gjaldskráin var á sínum tíma byggð á ítarlegri kostnaðargreiningu af hálfu fjármálaráðgjafa Deloitte, það er reyndar talsvert síðan. Kostnaðargreining gjaldskrárinnar hefur aukinheldur verið til umfjöllunar fyrir Hæstarétti Íslands hjá Þjóðskrá og, með leyfi forseta, leyfi ég mér að vísa til dóms Hæstaréttar Íslands nr. 837/2014, sem var Creditinfo lánstraust hf. gegn íslenska ríkinu og Þjóðskrá Íslands. Í málinu kom til skoðunar forveri gjaldskrár þeirrar sem hér er til umfjöllunar og sem gildandi gjaldskrá er að stofni til byggð á:
„Taldi rétturinn að nægilega traustir útreikningar hefðu legið til grundvallar þeim áætlunum, sem fjárhæð hlutaðeigandi gjalda byggði á, og að kostnaðarliðir hefðu verið í efnislegum tengslum við þá þjónustu sem gjaldtökunni væri ætlað að standa undir. Væru forsendur gjaldskrárinnar fyrir töku gjaldanna því taldar nægjanlega traustar og samrýmanlegar grundvallarreglum og sjónarmiðum um fjárhæð þjónustugjalda.“
Ég myndi segja að þetta væri svar mitt við fyrirspurn þingmannsins.
Varðandi stefnu ráðherra um gjaldtöku fyrir uppflettingu í opinberum gagnasöfnum þá tel ég, virðulegur forseti, að verulegur samfélagslegur ábati yrði af því að gögn sem þessi yrðu almennt gerð opin á einhvern hátt. Það myndi vega upp þann kostnað sem ríkið myndi þurfa að leggja stofnuninni til. Það er einnig í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að opna betur fyrir aðgengi að gögnum og efla þannig nýsköpun. Við vitum ekki hvað einhverjir aðilar þarna úti gætu gert við þessi gögn hefðu þeir aðgang að þeim. En um leið og ég segi þetta er rétt að geta þess að ýmis gögn eru birt opinberlega af þjóðskrá í dag á opingögn.is, ýmist ein eða sér eða í samvinnu við önnur stjórnvöld. Þar má m.a. finna lögbýlaskrá, leiguskrá íbúðarhúsnæðis, kaupskrá fasteigna, staðfangaskrá o.fl. En ég held, virðulegur forseti, að hægt sé að gera enn betur og ég held við eigum að halda áfram þennan veg, að opna aðgang að gögnum. Á móti munum við þurfa að vera tilbúin hér í þinginu til að leggja aukið fjármagn til einstakra stofnana.