152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

uppfletting í fasteignaskrá.

467. mál
[18:37]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Þetta er í rauninni hluti af stærri og nauðsynlegri umræðu um gjaldtöku hins opinbera. Hvenær er meðalhófs gætt? Getur það virkilega verið að það kosti umsjónaraðila netskrár 700 kr. í hvert skipti sem einhver rambar þar inn til að fletta annarri manneskju upp í þjóðskrá eða fasteignaskrá? Er það hóflegt gjald fyrir hverja einustu uppflettingu? Ég er ekki viss um að svo sé. Hæstv. ráðherra kom hér og staðfesti að Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að þessi gjaldskrá sé í samræmi við lög en ég held að hið opinbera þurfi að íhuga það gaumgæfilega hvort hófs sé gætt, t.d. varðandi þessa persónuskrá og nauðsynlegar upplýsingar þar úr.