uppfletting í fasteignaskrá.
Frú forseti. Það er mikil tímaskekkja að greiða þurfi fyrir aðgang að opinberum gögnum. Kostnaðurinn í núverandi gjaldskrá er svo fjarri lagi. Raunverulegur kostnaður við að veita aðgang er í aurum talinn, ekki hundruð eða þúsundum króna. Opið aðgengi að gögnum hefur alls staðar þar sem það er innleitt skapað ný tækifæri, bæði fyrir nýsköpun, rannsóknir og gagnrýna samfélagsskoðun fjölmiðla. Það er því löngu kominn tími til að endurskoða allar þær sértekjur ríkisstofnana sem fela í sér sölu á aðgengi að gögnum. Ávinningur af því að opna aðgengi er mun meiri en þær tekjur sem ríkið innheimtir á þennan máta. Það er kominn tími á stafræna umbyltingu í aðgengi að gögnum.