uppfletting í fasteignaskrá.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Fyrir mér vekur þessi fyrirspurn upp spurningar um gjaldtöku almennt. Hér hefur þeim sem hafa þegar talað orðið tíðrætt um raunverulegan kostnað við að afhenda þessi gögn sem með rafrænum lausnum er í raun orðinn enginn, kostnaðurinn við að prenta út einhver skjöl sem til eru. Þarna kemur upp atriði sem ég held að almenningur sé ekki sérstaklega meðvitaður um, sem er það að stjórnvöldum er heimilt að taka gjald fyrir þá þjónustu sem þau veita þegar gjaldtakan svarar kostnaði við að veita þá þjónustu. Þegar gjaldið fer umfram kostnaðinn sem er af því að veita þjónustuna, sem á klárlega við þegar rukkaðar eru fleiri þúsund krónur fyrir að afhenda PDF-skjal sem er inni á vefnum, þá er það skattur. (Forseti hringir.) Það er skilgreint sem skattur. Slíkan skatt má bara leggja á með lögum og er gert í lögum um aukatekjur ríkissjóðs. (Forseti hringir.) Ég er á þeirri skoðun að við þurfum að endurhugsa aðeins alla þá gjaldtöku (Forseti hringir.) sem við erum að samþykkja sem er í raun ekki þjónustugjöld, (Forseti hringir.) eins og fólk kannski heldur, heldur skattur.