152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

uppfletting í fasteignaskrá.

467. mál
[18:42]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Gjaldskrá fasteignaskrár er þessi: Mánaðarlegt þjónustugjald, 4.100 kr. Stofngjald vefþjónustu 68.800 kr. Svo eru einingagjöld fasteignaskrár fyrir yfirlitsmynd eða eigendasögu fasteignar eða breytingasögu fasteignar. Síðan er rafrænt veðbandayfirlit, 850 kr. Það er sérstaklega tilgreint í lögum en uppfletting á hinu kostar 72 kr. í einingagjöldum. Það er mjög skrýtið þegar maður skoðar kostnaðinn, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson benti á áðan, að þegar um rafræna afhendingu gagna er að ræða þá er kostnaðurinn ekki svona mikill. Þegar hæstv. ráðherra segir að Alþingi verði þá að vera tilbúið til að koma með auknar fjárheimildir í staðinn bendir það til þess að verið sé að nýta þessa þjónustu til að fjármagna aðra vinnu þjóðskrár eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þegar verkefnið kemur þangað. Það er ekki málefnalegt. Þó að hér hafi verið vísað til hæstaréttardóms um að þegar gjaldskráin var sett hafi það verið málefnalegt, þá hefur ýmislegt breyst síðan þá. Við erum að reyna að fara inn í aukna stafræna vinnslu sem er einfaldlega ódýrari fyrir afhendingu gagna. Þegar kemur að öðrum gjöldum, t.d. fyrir vottorð sem krefjast sérvinnslu, þar sem maður kemur að og stússast í því að vinna einhvers konar útreikninga úr flóknari fyrirspurnum, er kostnaðurinn skiljanlegri. En þegar það er einfaldlega verið að toga gögn úr gagnagrunni þá er það eitthvað sem ég myndi gera athugasemd við að sé kannski ekki alveg eins nákvæmt. Þess vegna spyr ég aftur hæstv. ráðherra: Telur ráðherra að núverandi gjaldskrá sé hófleg? Ég er að spyrja hæstv. ráðherra um hans skoðun.