152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

uppfletting í fasteignaskrá.

467. mál
[18:45]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki alveg náð að fylgja hv. þingmönnum hér í gagnrýni þeirra á þau svör sem ég var með. Ég ætla ekki að deila um niðurstöðuna við Hæstarétt og þess vegna kom ég fram með þau rök að það hefði verið mat dómsins á þeim tíma á þeirri gjaldskrá sem núverandi gjaldskrá er byggð á, að þetta væri nægilega vel undirbyggt til að uppfylla það að þetta er þjónustugjald en ekki skattur. Þar af leiðandi er ekki verið að nota þessa fjármuni í að fjármagna einhverja aðra starfsemi. Ég held líka að ég hafi sagt að ég væri hlynntur því, og það væri stefna bæði mín og ríkisstjórnarinnar, að hafa aukinn aðgang að opnum gögnum og að í því gæti falist veruleg tækifæri fyrir samfélagið í nýsköpun á þessu sviði sem og á einhverjum öðrum sem við erum ekki búin að sjá fyrir. En það er nokkuð augljóst að ef þeir fjármunir sem eru sértekjur í dag, til að standa undir ákveðnum hluta starfsemi viðkomandi stofnana, fást ekki þá þurfa þeir að koma einhvers staðar frá. Þeir geta þá ekki komið annars staðar en úr ríkissjóði þangað til að við erum búin að klára alla stafrænu væðinguna og sparnaðurinn er kominn. En það þarf oft og tíðum að fara í talsverða uppbyggingu á bæði gagnagrunnum og á þjónustuvefjum til að hægt sé að gera það. Mér finnst eins og hér sé gerð einhver tilraun til ágreinings sem ekki er fyrir hendi og verð bara að segja að ég er svolítið undrandi á því vegna þess að fyrirspurnin er fín og jákvæð og það þarf að taka þessa umræðu um aðgang að opnum gögnum. (Forseti hringir.) En það þýðir ekki að fara að búa til einhvern ágreining sem ekki er fyrir hendi.