rafræn stjórnsýsla við afgreiðslu umsókna hjá Útlendingastofnun.
Herra forseti. Burt með báknið, segja stundum Sjálfstæðismenn en það gengur eitthvað voða hægt að brjóta báknið á bak aftur þegar kemur að stjórnsýslu útlendingamála. Það virðast einhvern veginn flestir bara svolítið sáttir með að það sé þarna bákn sem þvælist mjög rækilega fyrir fólki sem leitar skjóls hér. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað kallað eftir því að Útlendingastofnun innleiði rafræna umsýslu og afgreiðslu umsókna og haldi utan um umsóknir og úrvinnslu þeirra í virkum og öruggum gagnagrunni. Það eru mörg ár síðan stofnunin sjálf tók undir þetta og skilgreindi það sem lykilverkefnið hjá sér að ráðast í einmitt slíkar aðgerðir. En ég held að það sé alveg ljóst að rafræn stjórnsýsla almennt í útlendingamálum kallar á mjög afgerandi frumkvæði frá dómsmálaráðuneytinu og snertir miklu fleiri stofnanir heldur en bara Útlendingastofnun. Það skyldi þó ekki vera (Forseti hringir.) að þrátt fyrir allar yfirlýsingarnar um stafrænt Ísland o.s.frv. þá sé einfaldlega bara búið að vanrækja fjárfestingar í stafrænum innviðum? (Forseti hringir.) Við þurfum kannski að gera miklu betur þarna í að tryggja sveigjanlega og snjalla stjórnsýslu í útlendingamálum.