málsmeðferðartími í kynferðisafbrotamálum.
Frú forseti. Aftur og aftur eru dómar í kynferðisbrotamálum mildaðir vegna langs málsmeðferðartíma, í nauðgunarmálum og í alvarlegum kynferðisbrotamálum gegn börnum. Upplifir brotaþoli réttlæti þegar refsing er lækkuð vegna tafa við afgreiðslu? Upplifir sakborningur að kerfið sé eðlilegt þegar sakfellt er í máli hans meira en þremur árum eftir að kæra hefur verið lögð fram? Bara í síðasta mánuði sáum við dóm í Landsrétti í nauðgunarmáli sem hafði tekið næstum þrjú og hálft ár í kerfinu. Hvers vegna eru dómstólar að gefa afslátt af refsingum fyrir þetta alvarleg brot? Það er vegna þess að í stjórnarskránni og í mannréttindasáttmála Evrópu er borgurum tryggður réttur til hraðrar málsmeðferðar. Sakborningur nýtur góðs af því við ákvörðun refsingar þegar mál hefur dregist en eftir situr brotaþoli sem upplifir annað áfall.
Virðulegi forseti. Ég ætla leyfa mér að sletta: Justice delayed is justice denied, er stundum sagt. Það er frumhlutverk ríkisvaldsins að verja borgarana. Þess vegna þurfa lögregla, ákæruvald og dómstólar að hafa burði til að vinna bæði faglega og hratt og það er hlutverk hæstv. dómsmálaráðherra að tryggja þessum stofnunum fjármagn og stuðning til að vinna hraðar. Það eru engin geimvísindi þarna að baki, þetta snýst um pólitískan vilja. Skyldi þetta gerast hjá ákæruvaldinu vegna þess að kynferðisbrotamálin séu neðarlega á lista? Nei, kynferðisbrotamálin eru í sérstökum forgangi. Og hvað segir það okkur þá um málshraða og framgang annarra sakamála sem taka enn þá lengri tíma? Það sjáum við t.d. hvað varðar efnahagsbrotamálin sem eru árum saman að malla í gegnum kerfið.
Gagnrýni mín hér í dag beinist ekki að ákæruvaldinu, hún beinist ekki að lögreglunni, málafjöldinn þar eykst ár frá ári en það sama gildir ekki um fjölda starfsmanna. Ábyrgðin er hæstv. dómsmálaráðherra og ég ætla að leyfa mér að segja að ábyrgðin er Sjálfstæðisflokksins sem hefur farið með dómsmálaráðuneytið í 26 ár af síðustu 30. Réttarríki sem ekki getur staðist kröfur stjórnarskrár stendur á brauðfótum. Ríkisstjórnin bregst brotaþolum, hún bregst sakborningum, hún bregst almenningi og hún bregst réttarríkinu. Þessi vandi var til staðar fyrir tíu árum, hann var til staðar fyrir fimm árum og hann er til staðar í dag. Við erum oft hér að ræða innviði og það vill stundum gleymast að lögreglan, ákæruvaldið, og dómstólarnir eru mikilvægir innviðir, þessar stofnanir sem almenningur hefur til að leita réttar síns.
Forseti. Ég bind vonir við að hæstv. dómsmálaráðherra geri meira hér í kvöld en að tala um að hann skilji alvarleika málsins. (Forseti hringir.) Það þarf tímasetta áætlun og það þarf fjármagn til að styrkja þessa innviði. Réttarríkið er að veði. Þetta snýst um réttlæti.