152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

málsmeðferðartími í kynferðisafbrotamálum.

306. mál
[19:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Ég þakka málshefjandi fyrir að tala um þetta mikilvæga mál. Það er algerlega óásættanlegt að brotaþolar í kynferðisbrotamálum þurfi að bíða í mörg ár eftir því að fá réttlætinu fullnægt. Það er algerlega óásættanlegt að rannsókn kynferðisbrotamála taki marga mánuði eða ár, oft án þess að nokkuð gerist mánuðum saman. Það er algerlega óásættanlegt að gerendur séu ekki teknir í skýrslutöku eða látnir vita að þeir séu með stöðu sakbornings í marga mánuði. Það er greinilegt að það þarf aukið fjármagn, mannskap og þjálfun fyrir rannsakendur og ákæruvald. Það er breið samstaða á þingi um að fjárfesta í þessum málum. Hvað hyggst hæstv. ráðherra gera til að nýta þá samstöðu til þess að vinna aftur traust þolenda?