152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

viðbrögð við efnahagsástandinu.

325. mál
[19:49]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Frá því að þessi fyrirspurn var lögð fram í byrjun febrúar hefur verðbólgan haldið áfram að hækka og mældist 6,2% núna í febrúar og það má búast við hátt í 7% verðbólgu í nýjum tölum Hagstofunnar í fyrramálið. Seinni fasi Covid-krísunnar efnahagslega séð snýr að endurræsingu hagkerfa heimsins og það lá fyrir að þrýstingur myndi skapast á hrávörumörkuðum vegna þessa. Eins hafa verið merki um þrýsting á íbúðamarkaði hér heima í marga mánuði. Margir vöruðu við þessu en enginn í ríkisstjórn vildi hlusta á það. Seinagangur í viðbrögðum í tengslum við Covid ól af sér verulegt efnahagslegt ójafnvægi fyrir tveimur árum. Núna virðist sama staða vera komin upp. Í ofanálag hefur brotist út stríð í Evrópu sem ýkir verðlagsþróunina hér á landi. Einu svörin sem hafa komið fram hjá hæstv. fjármálaráðherra hingað til er samtal við einn banka um að aðeins tvö húsnæðislán séu í vanskilum. Þetta svar veldur mér áhyggjum, virðulegi forseti. Ef fólk er í fjárhagsvandræðum er húsnæðislánið það síðasta sem þú hættir að borga. Ef þetta er mælikvarði á hvenær grípa eigi inn í, gamlar tölur um fólk sem er að missa húsin sín, þá er eitthvað að. Því er mjög gott að fá þessa umræðu inn í þingið með skýrum hætti og ég hlakka til að fá greinargóð svör frá hæstv. ráðherra um hvernig hagstjórninni er háttað í fjármálaráðuneytinu.

Í fyrsta lagi: Hefur legið fyrir aðgerðaáætlun í ráðuneytinu um viðbrögð við miklum kostnaðarhækkunum í hagkerfinu og á húsnæðismarkaði vegna Covid í ljósi skýrra merkja um verðþrýsting?

Í öðru lagi: Fylgist ráðuneytið með áhrifum hraðra vaxtabreytinga á greiðslubyrði fólks í viðkvæmri stöðu og ungs fólks og hvaða greiningarvinna liggur þar nákvæmlega að baki?

Í þriðja lagi: Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við til skamms tíma til að létta undir með því fólki sem verðbólgan og afleiðingar hennar bitnar hvað verst á?

Og að lokum: Hvaða aðgerðir eru í burðarliðnum hjá ríkisstjórninni til að auka framboð á húsnæði í landinu?

Síðasti þátturinn snýr vissulega að langtímaúrræðum sem mikið hefur verið rætt um hér í þinginu en það verður forvitnilegt að heyra hvaða vinna til skamms tíma er í gangi núna í fjármálaráðuneytinu og hvernig hún mun birtast okkur á þessum síðustu vikum þingsins.