viðbrögð við efnahagsástandinu.
Virðulegi forseti. Við erum að ræða kostnaðarhækkanir í hagkerfinu hér og nú og áhrif hraðra vaxtabreytinga á greiðslubyrði heimila. Í frétt á Vísi 19. mars síðastliðinn var haft eftir hæstv. fjármálaráðherra að ríkisstjórnin væri að horfa til sértækra aðgerða fyrir tekjulægstu hópa samfélagsins til að bregðast við hækkandi verðlagi. Hæstv. forsætisráðherra talaði á sama veg í dag. Hún talaði um markmiðssettar aðgerðir sem beinast að tilteknum hópum og hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur kallað eftir slíkum aðgerðum og stungið upp á því að þær verði jafnvel fjármagnaðar með hvalrekaskatti á annaðhvort bankakerfið eða sjávarútvegsfyrirtæki. En hvað er raunverulega að gerast? Hvaða aðgerðir eru raunverulega í burðarliðnum hjá þessari ríkisstjórn? Ég hélt kannski að við fengjum loksins einhver svör. Við erum búin að heimta svör í margar vikur, tvo mánuði, biðja um að fá að vita hvað það er sem er í burðarliðnum, hvenær það komi fram, hvort það komi fram yfir höfuð, hvort það sé eitthvað á leiðinni, (Forseti hringir.) einhverjar aðgerðir fyrir heimilin sem verða harðast úti vegna kostnaðarhækkana í hagkerfinu (Forseti hringir.) og vegna hækkandi vaxtastigs. En nei, við höfum ekki fengið nein svör frá fjármálaráðherra núna, hann fær tækifæri til þess á eftir og vonandi kemur eitthvað.