152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

viðbrögð við efnahagsástandinu.

325. mál
[20:00]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er margt sem hægt er að taka undir með hæstv. ráðherra. Ég vil deila með honum áhyggjum af slæmri stöðu ríkissjóðs. Við erum búin að ræða það hér og benda á það ítrekað að ríkissjóður var orðinn ósjálfbær fyrir Covid og við þurfum að glíma við skuldastöðu ríkissjóðs, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Ég tek undir með hæstv. ráðherra hvað það varðar. Það veldur manni ákveðnum áhyggjum að sjá þá þróun sem við stöndum núna frammi fyrir, aukinni verðbólgu, heimatilbúinni verðbólgu lengst framan af eins og við höfum vitað og fengið m.a. staðfest frá Seðlabankanum og Hagstofunni. Það sem ég ætla að ítreka hér af okkar hálfu, eða alla vega af minni hálfu, er þessi mantra um að nú sé vaxtastigið það besta í 30 ár. Það kann vel að vera að það sé hægt að taka verbúðarárin og miða við þau, bara frábært. En við erum ekki í samkeppni við okkur sjálf innan lands. Við erum í samkeppni við útlönd og þegar við berum okkur og vaxtastig okkar Íslendinga saman við erlend heimili, t.d. heimili í Evrópu, þá er það enn þannig að við erum að borga margfalt (Forseti hringir.) íbúðaverð hér heima. Ef við berum okkur saman við útlönd og ef samanburðurinn (Forseti hringir.) er tekinn þar sjáum við að vaxtastigið okkar er verra (Forseti hringir.) í þeim samanburði en verið hefur lengi.