152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

viðbrögð við efnahagsástandinu.

325. mál
[20:02]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég vil líka taka undir áhyggjur hæstv. fjármálaráðherra af stöðu ríkissjóðs og skuldunum. Veruleiki dagsins í dag er sá að við erum að horfa á aukna verðbólgu, við erum að horfa á vexti og þeir fara hækkandi. Í því samhengi má minna á að Sjálfstæðisflokkurinn var með eitt eða tvö slagorð í síðustu kosningabaráttu og eitt þeirra helsta var jú lægri vextir. Ég held að fólk hafi í því samhengi hlustað og trúað því að við værum að tala um lægri vexti til framtíðar, að við værum ekki að keppa við fortíðina heldur að markmiðið væri að skapa hér samkeppnishæf lífskjör og að vextir væru a.m.k. stöðugir, að þeir væru ekki að fara að snarhækka og að sigurmantran fælist ekki í því hvernig hlutir voru fyrir áratugum síðan.