152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

viðbrögð við efnahagsástandinu.

325. mál
[20:03]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þegar vanskil verða þá er komið neyðarástand og eins og hv. þm. Kristrún Frostadóttir nefndi þá er húsnæðið það síðasta sem fólk hættir að borga af. Málið er að meðaltöl virka í rauninni ekki. Sá sem stendur með annan fótinn í ísköldu vatni og hinn í brennandi heitu hefur það að meðaltali mjög gott. Við erum að tala um fólk sem er í erfiðleikum, sem er bara virkilega að stríða við erfiðleika núna, og við þurfum að koma því til aðstoðar. Ég sé ekki að það bæti stöðu ríkissjóðs nokkuð að fólk borgi hærri vexti.

Og annað: Jú, vextir eru lægri en þeir hafa verið, en þeir eru samt óþarflega háir. Það er bara ekki rétt heldur hjá fjármálaráðherra að leiga hafi ekki hækkað mikið. Við höfum séð raunveruleg dæmi um fjölda leigusamninga sem hafa hækkað um tugi þúsunda á síðustu tveimur árum þannig að við verðum að horfast í augu við raunveruleikann eins og hann er. Við erum ekki að biðja um að fólki sé endilega hjálpað sem er í efstu lögunum, við höfum áhyggjur af hinum.