viðbrögð við efnahagsástandinu.
Frú forseti. Hér fyrr í dag ræddum við áhrif stríðsins í Úkraínu á fæðuöryggi Íslands og ég nefndi hinar miklu hækkanir sem það orsakar og tækifæri ríkisins til að jafna út þau áhrif. Í áratugi hafa hagfræðingar trúað því að eina stjórntækið sem hægt sé að nýta gegn verðbólgu sé að hækka og lækka vexti, stjórntæki sem tekur oft marga mánuði að virka og enn fleiri til að slaka á. En stjórntæki ríkisins, sér í lagi í litlu landi eins og Íslandi, eru margfalt fleiri og það er kominn tími til að horfa á fleiri þætti til að hafa áhrif á hagkerfið; skattar, tollar, bætur og hinir ýmsu tilflutningar á milli þeirra hópa sem hafa nóg og þeirra sem vantar meira. Fyrir lítið hagkerfi eins og okkar ætti að vera mun auðveldara að finna hvaða stjórntæki eru til staðar og hvaða áhrif þau gætu haft á þenslu og samdrátt hagkerfisins. Hættum að vera föst í 20. aldar hagfræði og hennar einfeldni og tökum að nýta okkur tæknina og 21. öldina.