152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

viðbrögð við efnahagsástandinu.

325. mál
[20:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Hér var mikið talað um fortíðina, ekki nútíðina og hvað þá framtíðina. Hæstv. fjármálaráðherra talar um að það sé ekki hægt að ráðast í aðgerðir í hvert skipti sem verðbólga fer yfir markmið. Við sjáum nú verðbólgutölur sem hafa ekki sést í áratug. Hvers konar framsetning er þetta eiginlega? Við sjáum að löndin í kringum okkur, sem hér er vitnað til að séu með jafn háa verðbólgu, tala um mestu lífskjarakreppu sem sést hefur síðan á áttunda áratugnum, sjöunda áratugnum. Þetta er í engu samhengi við umræðu neins staðar annars staðar. OECD, Efnahags- og framfarastofnunin, var að gefa út skýrslu í síðustu eða þar síðustu viku, sem hæstv. fjármálaráðherra sá kannski, þar sem var einmitt verið að tala um mikilvægi þess að ráðist yrði í verðbólguumhverfi í sértækar aðgerðir, ekki almennar aðgerðir eins og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur réðist hér í, til að mynda með því að fara í þensluhvetjandi úrræði á fasteignamarkaði sem sneru að séreign, til að mynda með því að fara í þensluhvetjandi úrræði sem sneru að Allir vinna. Það er einmitt búið að ráðast í allt of mikið af almennum úrræðum. Þar er ég sammála. Það eru sértæku úrræðin sem við erum að kalla eftir og það eru engin svör um það. Mig langar til að vitna aðeins í lokin í það sem hæstv. forsætisráðherra, sem deilir í ríkisstjórn með hæstv. fjármálaráðherra, sagði hér í morgun þar sem hún talaði um að það væri mikilvægt að við myndum mæta þessum afleiðingum með aðgerðum sem beindust að tilteknum hópum, ekki endilega flötum aðgerðum sem dreifðust jafnt á allar hendur. Þarna erum við að tala um almennar aðgerðir sem enginn í þessum sal er að tala fyrir heldur sértækum aðgerðum.

Mig langar því að spyrja hæstv. fjármálaráðherra beint í þessu seinna skrefi: Eru þessar umræddu aðgerðir sem hæstv. forsætisráðherra er að tala fyrir, bæði í fjölmiðlum og hér í pontu Alþingis, í undirbúningi í fjármálaráðuneytinu? Er fjármálaráðuneytið að undirbúa aðgerðir sem hæstv. forsætisráðherra er að mæla hér fyrir í pontu?