brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Í kjördæmavikunni heimsóttum við Sjálfstæðismenn í Reykjavík m.a. verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki. Atvinnurekendur í þeim geira höfðu næg umkvörtunarefni fyrir okkur þingmenn og borgarfulltrúa, m.a. töldu þeir sig reka þjálfunarbúðir fyrir ríkisstarfsmenn. Það væri sem sagt viðvarandi vandamál á þessum vinnustöðum að ríkið tæki frá þeim starfskrafta. Þegar hið opinbera auglýsir eftir háskólamenntuðum sérfræðingum með reynslu stökkva þeir til og yfir í hlýjan og öruggan faðm ríkisins, yfir í góð eða betri laun, meira starfsöryggi og styttingu vinnuvikunnar og hver getur álasað þeim.
Eftir þessar heimsóknir sendi ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra því fyrirspurn um hvort hann hefði upplýsingar um umfang sérfræðinga sem færa sig frá einkageiranum yfir til hins opinbera. Þetta er vandamál. Þessi samkeppni um starfsfólk er ekki minni í sveitarfélögunum en Reykjavíkurborg, þar sem stjórnsýslan hefur þanist út, hefur m.a. nýlega ákveðið að fara í samkeppni við einkaaðila um tæknimenntaða sérfræðinga við stafræna umbreytingu í borginni. Hæstv. ráðherra ræður víst ekki, og því miður ekki, ríkjum í Ráðhúsinu en ég myndi vilja vita hvort hann muni beita sér fyrir aukinni úthýsingu verkefna og aðkeyptri þjónustu ríkisins í stað mannaráðninga.
Við vitum að starfsmannahald hins opinbera hefur vaxið jafnt og þétt og fjölgun opinberra starfa hefur verið mikil. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru launþegar hjá hinu opinbera þriðjungur af heildarfjölda launafólks í landinu á síðasta ári. Fjölgun launafólks í opinbera geiranum á sér örugglega eðlilegar skýringar að einhverju leyti, m.a. í heilbrigðisgeiranum. Það væri gagnlegt að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra um það hvort þróun starfsmannamála hjá hinu opinbera sé eðlileg og hvort stefnubreytingar sé að vænta í þeim málum, m.a., eins og ég hef nefnt, með aukinni útvistun.