brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Hér ætla ég að leggja þann skilning í fyrirspurnina að með opinbera vinnumarkaðinum sé kannski fyrst og fremst átt við starfsmenn ríkisins en það er sá hluti vinnumarkaðarins sem fellur undir mína ábyrgð. Störfum hjá ríkinu sem gera ráð fyrir menntun á háskólastigi hefur á undanförnum árum fjölgað í samræmi við auknar kröfur um sérfræðiþekkingu. Samhliða þessari þróun hefur heldur dregið úr þörf fyrir störf sem gera ráð fyrir grunnmenntun eða námi á framhaldsstigi. Einn þáttur í þessari þróun hefur verið sá að talin hefur verið þörf fyrir að færa menntun og færni sumra fjölmennra starfstétta ríkisins upp á háskólastig. Sem dæmi um þetta frá árum áður má taka menntun hjúkrunarfræðinga en sem nýlegra dæmi mætti nefna nám lögregluþjóna. Annar þáttur felst í áhrifum af mannfjöldaþróuninni, sem hefur t.d. falið í sér mikla aukningu í umsvifum framhaldsskólakerfisins en ekki síður háskólastigsins. Í seinni tíð gætir af vaxandi þunga áhrifa af öldrun þjóðarinnar sem kallar á aukna starfsemi heilbrigðisþjónustunnar.
Hlutfall þeirra starfsmanna ríkisins sem eru háskólamenntaðir hækkaði úr 56% í 64% frá árinu 2010 til ársins 2021, samkvæmt gögnum frá Fjársýslu ríkisins. Hækkun hlutfallsins felur í sér fjölgun um 2.412 þúsund ársverk eða sem svarar til 24% aukningar. Þessi þróun endurspeglast t.d. í fjölgun starfa innan heilbrigðiskerfisins, þar sem um 43% ríkisstarfsmanna starfa. Ársverkum háskólamenntaðra heilbrigðisstétta sem starfa hjá ríkinu fjölgaði um rúmlega 30% á árunum 2010 til 2021, en hjúkrunarfræðingum hefur fjölgað um 33% og læknum um 31%.
Ég gæti haldið áfram að telja upp svona dæmi. Ósérhæfðum störfum hjá ríkinu fækkaði sem sagt úr rúmlega 7.800 í rúmlega 6.800, eða úr u.þ.b. 44% af heildarfjölda í 36%, og að hluta til skýrist sú þróun af því að í ársbyrjun 2011 fluttust 950 stöðugildi frá ríki til sveitarfélaga í tengslum við flutning málefna fatlaðra en þar voru aðeins um 20% háskólamenntaðir. Það þarf því að rýna þessi gögn mjög vel til að sjá heildarmyndina en þessi framvinda í samsetningu starfsmanna fylgdist í raun að við þá þróun sem hefur átt sér stað á Íslandi á fjölda háskólamenntaðra síðastliðinn áratug eða svo.
Við höfum ekki tölur til að fara yfir það hversu margir háskólamenntaðir hafa horfið af almenna markaðnum yfir til stofnana ríkisins, hvorki tímabundið né varanlega, né á hinn bóginn höfum við tölur um hve margir háskólamenntaðir hafi horfið frá stofnunum ríkisins yfir á almenna markaðinn þannig að það er erfitt að svara því nákvæmlega. En auðvitað tökum við alvarlega ábendingum sem við fáum, eins og mér virðist hv. þingmaður hafa fengið í þessari heimsókn, um að starfskjörin almennt á opinbera markaðnum séu orðin betri en gengur og gerist á almenna markaðnum. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, mjög sterkt, að almenni markaðurinn yrði að vera leiðandi og ríkið þyrfti að gæta sín á því að vera ekki leiðandi í starfskjaraþróun í landinu eða launaþróun. Hins vegar er það svo að það hentar sumum, að því er virðist, betur að búa við það umhverfi sem ríkið býður upp á og við höfum svo sem alveg nýleg dæmi um hvað það þýðir. Við sjáum bara hvað gerðist hérna í heimsfaraldrinum. Hvaðan töpuðust störfin? Við sögðum engum upp hjá ríkinu en það urðu 20.000 manns atvinnulaus. Öll störfin töpuðust í einkageiranum og að því leyti til má segja að það sé almennt meira starfsöryggi, ef við erum að ganga í gegnum efnahagsþrengingar, á hinum opinbera vinnumarkaði en á almenna vinnumarkaðnum.
Það mætti tína fleira til sem varðar lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og fleira mætti fara út í sem ég ætla ekki að gera. En ég held að við þurfum að fylgjast með ábendingum af þessum toga og rétt í lokin ætla ég að segja að það væri ekki óæskilegt að við værum með einn svona nokkuð samræmdan vinnumarkað í framtíðinni sem beinir fyrst og fremst flæði vinnuafls í arðbær verkefni og bætt lífskjör og þar með yrði lítil þörf fyrir að hið opinbera hlutist til um hvaða starfsvettvang fólk velur sér, svo sem með því að sporna sérstaklega gegn því að það gangi til starfa hjá hinu opinbera hafi það háskólamenntun. Það myndu menn kannski ekkert sérstaklega vilja.
Varðandi útvistunarstefnuna þá held ég að við þurfum að gæta að því að virðisaukaskattskerfið sé ekki að skapa óeðlilega (Forseti hringir.) hvata til þess að taka verkefni til sín og forðast það að þurfa að sitja uppi með virðisaukaskatt af því að kaupa aðkeypta þjónustu. En ég hef þá trú að eðlilegt samspil þurfi að vera á milli útseldra verkefna og þess sem ríkið hefur innan húss.