152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.

392. mál
[20:35]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er alltaf fagnaðarefni þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins leyfa sér að tala með þessum hætti en allt of sjaldgæft. Ég tek undir þessar hugmyndir hv. þingmanns og áhyggjur af því hver þróunin er að verða hjá ríkinu að þessu leyti og hver staða einkageirans er gagnvart hinu opinbera að þessu leyti sömuleiðis. Ég fagna orðum hæstv. fjármálaráðherra varðandi útvistun verkefna því að það var sérstakt að fylgjast með því hver stefnan var allt síðasta kjörtímabil, ekki síst í heilbrigðiskerfinu sem hv. þingmaður var að tala um. Ég held því að það væri mjög af hinu góða að opna augu ríkisstjórnarinnar og ekki síst Sjálfstæðisflokksins fyrir þessum veruleika, að við erum að horfa á þetta starfsöryggi og þessar breytur hjá ríkinu og það má ekki verða þannig að vegna þungans af hálfu ríkisins eigi einkaframtakið mjög undir högg að sækja.