152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.

392. mál
[20:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég tel þetta vera þarfa og brýna umræðu. Loksins eru fleiri farnir að hafa áhyggjur af þessari þróun. Við sjáum náttúrlega að fyrstu skref ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili hafa ekki verið þau bestu þegar verið er að leggja út í fjölgun ráðuneyta. Kostnaður á tímabilinu er um 2 milljarðar og hann felst ekki síst í því að verið er að fjölga opinberum starfsmönnum.

En ég vil um leið hæla þingmanninum. Ég vildi óska þess að hv. þingmaður hefði verið hér á síðasta kjörtímabili þegar við í Viðreisn vorum að vara við þeirri stefnu sem ríkisstjórnarflokkarnir, sömu ríkisstjórnarflokkarnir og eru núna, héldu allt kjörtímabilið, þ.e. að stoppa allt sem heitir starfsemi hjá sjálfstætt starfandi aðilum í heilbrigðisþjónustunni sem og að taka verkefni háskólamenntaðra starfsmanna, eins og hjá Krabbameinsfélaginu og þessum sjálfstæðu félögum og stofnunum sem hafa verið alveg ómetanleg viðbót og styrkur inn í íslenskt heilbrigðiskerfi.

Ég fagna þessari umræðu og vonast til þess að við getum tekið höndum saman um að útvista (Forseti hringir.) meiri þjónustu núna af hálfu hins opinbera en áður. Um leið vil ég taka undir með hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) að það er gríðarlega mikilvægt að það verði samræmd viðmið á vinnumarkaði fyrir bæði opinbera markaðinn og einkamarkaðinn og til þess þurfum við nýtt vinnumarkaðsmódel.