152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.

392. mál
[20:38]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Eins og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fór svo vel yfir þá eru ekki til nein gögn sem staðfesta hugmyndir um að háskólamenntað fólk sé að flýja einkageirann í stórum stíl. Það er í rauninni ósköp fátt sem bendir til þess. Ef litið er til fjölda opinberra starfsmanna í hlutfalli við fólksfjölda sjáum við að fjöldi opinberra starfsmanna hefur svo gott sem staðið í stað á undanförnum tíu árum. Ég deili ekki þessum áhyggjum af því að opinberir starfsmenn séu einhvern veginn á allt of góðum kjörum. Ef við skoðum bara samanburðinn sem kemur fram í nýjustu haustskýrslu kjaratölfræðinefndar, en þar er litið til reglulegra heildarlauna fullvinnandi félagsmanna í heildarsamtökum launafólks, og þau borin saman, þá gildir það hjá öllum félögunum sem er litið til að það eru starfsmennirnir á almennum markaði sem eru launahæstir. Launin eru alla jafna lægri hjá ríki og sveitarfélögum, hvort sem við horfum til BHM eða BSRB. Þannig að já, ég veit ekki alveg.